30.3.2010 | 23:23
Tónleikarnir vel heppnaðir.
Hæ hæ.
Einar heyrði í Írisi og Sindra tónleikarni vel heppnaðir en því miður náðum við ekki að sjá þá netsambandið er glatað hérna megin. Okkur er farið að hlakka til að horfa á upptökuna af þeim, ekki verra að eitthvað skemmtilegt sé framundan. Heyrði í Lóu á Allanum á Siglótónleikarnir tókust vel þar og mikil stemming og ánægja með tónleikana. Helga og Kalli í Grundarfirði sögðu að það hefði verið kósí stemmning og kertaljós og upplifunin eins og við hefðum setið með þeim. Yndislegir tónleikar í allastaði við þökkum öllum fyrir okkur, að finna ykkar stuðning gerir okkur sterkari.
Já og Jón er bara hress að vanda held að fyrir rest hann verði kallaður íslenska hrekkssvínið sem vill ekki borga ICESAWE.
Kveðja frá Newcastel .
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Frábært kvöld !
Góð tónlist, góðar minningar um Valda, góðar óskir til Jóns, ............ ............. ........................ ........................... ............. ...............
Takk fyrir mig!
ÁH
Ásgeir Haraldsson (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 00:07
Flottir tónleikar , gaman að geta fylgst með hér heima
Baráttukveðjur til ykkar
Elmar og Lauga
Guðlaug Guðmundsd (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 07:29
Frábærir tónleikar og yndislegur minningarlestur hjá Sindra. Takk kærlega fyrir mig. Guðbjörg fékk far með Óla Sigga og Sjöfn því hún ætlaði sko á tónleikana sjálfa :)
Kristín Pétursdóttir (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 08:29
Tónleikarnir voru virkilega góðir og stemmingin í FSN yndisleg. Haldið þið að Nýi Jón þurfi nokkuð nýja kennitölu þegar hann kemur aftur? Hrekkjusvínakveðjur til ykkar allra.
Sólrún (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 10:36
Elsku Sævör og fjölskylda.
Frábærir tónleikar og virkilega falleg stund. Sendi ykkur mínar bestu óskir með von um að allt gangi upp.
Baráttukveðja,
Hildur og fjölskylda
Hildur Mósesdóttir (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 10:49
Tónleikarnir tókust frábærlega vel, ég þakka kærlega fyrir mig. Íris, Sindri og aðrir sem stóðu að tónleikunum í gærkvöldi eiga sannarlega heiður skilið fyrir. Þarna var líka hálfgert ættarmót um leið og allir báðu kærlega að heilsa.
Við Sæþór fengum far með Hinrik í bæinn í gær á rauða bílnum, nýbónuðum og pússuðum. Hreinn og fínn bíll er bónusinn fyrir gráu áhyggjuhárin sem koma þegar synirnir fá bílpróf.
Frábært að sjá hvað þú ert hress Jón, við setjum þig í næstu samninganefnd um icesave
Hafið það sem allra best
Kolla og synir
Kolbrún Reynisdóttir (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 11:17
Frábærir tónleikar hér í FSN, kertaljós og samhugur :)
Gangi ykkur vel og Gleðilega páska.
Ólöf Hallbergs (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 18:01
Þetta voru án efa flottustu og fallegustu tónleikar sem ég hef farið á :)) ! þakka vel fyrir mig !
Knúús til þín jón ;* og gleðilega páska öll :)
Guðbjörg (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 20:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.