17.6.2010 | 12:15
Hamingja, það styttist í heimferð.
Hér er búið að vera yndisleg sumarblíða síðustu daga, rölt í bæinn með Snædís, Gillu og Árna. Það verður að sýna þeim það helsta hér eins og t.d. H&M, PRIMARK og svoleiðis. Jú, líka þessa fallegu borg og ánna Tyne. Búin að vera skemmtilegur og góður tími með okkar kæru vinum Gillu og Árna.
Jón er búin að vera með smá vesen neutrofílarnir hrundu niður í 0,45 og hann þurfti að fá lyf, eitthvað sem kallað er búst sem á að örva framleiðslu frumana í mergnum, við vorum búin að ákveða að við fengjum ekki að fara heim þann 25. en Profesor. Andrew Cant gladdi okkur mikið þegar við hittum hann í gærmorgun og fór yfir allt og sagði að það væri ekkert því til fyrirstöðu að við færum heim með krökkunum.
Við hér erum að móta dagskrána í tilefni 17. Júní Gilla og Árni tóku smá forskot á skrúðgönguna og skelltu sér í skoðunarferð á St. James' Park leikvang Newcastle, við ætlum í næstu viku með liðið okkar.
Til hamingu lýðveldi Íslands með daginn í dag. 17. Júní.
Kveðja Sævör.Einar Nýji Jón og Snædís.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:23 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Glæsilegt glæsilegt :) fæ bara fiðring í magann með ykkur nú þegar heimferðin fer að bresta á :) og neutrofílarir eiga þetta til að hoppa svona upp og niður (með einhvern athyglisbrest) . Gleðilega þjóðhátíð til ykkar allra .kv M.H.
Magga Hjálm,, (IP-tala skráð) 17.6.2010 kl. 14:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.