10.10.2008 | 15:08
Hvernig á að byrja á einhverju svona!
Sælir kæra fjölskylda og vinir.
Mér finnst hrikalega erfitt að byrja á þessu bloggi. Að setja á blað hugsanir og atburði er ekki fyrir alla, mér lætur betur að spjalla við fólk augliti til auglitis, en það hlýtur að koma með æfingunni.
Eins og þið vitið er Valdimar búin að vera veikur síðustu fjögur ár, var hann greindur með Crohn's (Bólgusjúkdóm í meltingarvegi) eins og Jón Þór en í febrúar 2008 fengu þeir bræður nýja greiningu Chronic Granolomatus diseas eða CGD sem að er blóðsjúkdómur þ.e. hvítublóðkornin eru veik í þeim. Ég ætla ekki að fara neitt nánar út í hvernig sjúkdómurinn er því annar læknirinn þeirra (Ásgeir) ætlar að skrifa smá pistil um hann þegar hann kemur heim frá Hollandi. Já Holland, í gær vorum við fyrir sunnan það var verið að taka blóðprufur sem Ásgeir ætlaði að taka með sér út og fara með á rannsóknarstofu þar sem er er að rannsaka þennan sjúkdóm, tekið var blóð úr mér, Valdimar, Jón Þór og Sævarði. Það hefur áður verið tekið blóð úr strákunum og okkur öllum til að rannsaka þarna úti í Hollandi kannski skilar það einhverju ef ekki fyrir þá þá kannski fyrir einhverja aðra.
Eins og þið vitið er Valdimar búin að taka ákvörðum um að fara í beinmergskipti sem er eini kosturinn fyrir hann um bættan líðan eins og stendur. Málið er að sjúkdómurinn hans eða granalómur hafa myndast í beinmegnum hans og líffærum. Lifrin hans hefur meira en tvöfaldað stærð sína einnig miltað, hann fór í júlí í fyrra í stómaaðgerð og er búið að fjarlægja ristilinn. Um daginn þegar hann vað alvarlega veikur hættu nýrun að starfa en sem betur fer gekk það til baka þannig að sjúkdómurinn er hugsanlega ekki komin í nýrun. Öll fjölskyldan fór í blóðprufu til að athuga hvort eitthvert okkar væri hentugur merggjafi Einar var sá eini sem kom til greina en ekki alveg 100% eins þannig að hugsanlega verður leitað til gjafa banka vonandi ekki fer eftir hvað læknarnir segja í Newcastel í Englandi þar sem beinmergskiptin munu fara fram.
Hér sit ég í eldhúsinu og er að brenna yfir með rokktónleika í kjallaranum, Shittararni eru með æfingu það eru Jón Þór og vinir og bandið þeirra heitir "Shit, mega góð grúbba.
Snædís fór í morgun að Laugum í Sælingsdal hún á víst að fara að fermast. Ha litla barnið mitt.
Sævarður er í Háskólanum í Reykjavík að stúdera stærðfræði.
Jóhannes Fannar er í Háskóla Ísland að nema Rafmagnsverkfræði.
Ég vil þakka fyrir mig og mína fjölskyldu.
Það er gott að finna það þegar á reynir að maður á stærri fjölskyldu en maður hélt, það eru ekki allir svo ríkir að hafa tvö sveitafélög á bakvið sig og samkenndin veitir manni styrk til að takast á við veruleikan og verkefni framtíðarinnar.
Kveðja Sævör
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 11.10.2008 kl. 22:28 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ hæ
Þetta er bara ágætis byrjun á bloggi hjá þér mín kæra,það er vonandi að Valdimar fái ósk sína upprætta og komist til Siglo
Það eru góðir og sterkir straumar sem við sendum ykkur og við hlökkum til að fá ykkur í heimsókn.
Kv. Fjölsk.Hvanneyrarbraut 11 Sigló
Gilla (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 14:17
Komið þið sæl. Ég mun fylgjast með á þessu bloggi. Bestu kveðjur til ykkar allra og gangi ykkur sem allra allra best. kveðja. Erla á Sigló
Erla Gull (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 12:47
Sæl Sævör mín og takk fyrir að leifa okkur að fylgjast með. Við hugsum öll mikið til ykkar og vonum að allt gangi vel með strákinn. Vonandi kemst hann í heimsókn á Sigló.
Kær kveðja frá Sigló. Erla Helga.
Erla Helga (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 14:43
Kæra Sævör og fjölsk.Sendum ykkur innilegar baráttukveðjur héðan frá Sigló gangi ykkur vel, kv.Jói og Biddý
Biddý og Jói (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 15:41
Kæra Sævör og fjölskylda.
Gangi ykkur sem allra best, við hugsum til ykkar á erfiðum tímum.
Kveðja Dóra og fjölskylda, Siglufirði.
Dóra Elíasar (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 21:51
Kæra fjölskylda
Braráttukveðjur til ykkar og gangi ykkur vel .
kveðja fjölskyldan Hlíðarvegi 11
Valdís Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 08:06
Halló sendi góða strauma .
kv Ægir
Ægir (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 08:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.