Hjúkka með tvö lömb. (Nurse gave birth to two lambs)

img_9038.jpg

Hæ hæ.Jón með Doktor Ásgeri og Professor Cant.

 

Hún Hjúkka (Nurse) kindin hans Valda var að bera í nótt. Hún bar tveimur lamb hrútum og það er búið að gefa þeim nafn.  Mórauði hrúturinn heitir Doktor Ásgeir en ljósi Prófessor Cant. Ég og Jón fórum að kíkja á hrútana og eru þetta hinir föngulegustu gripir.

Kveðja Sævör Hjúkka með Doktor Ásgeir og Professor Cant.


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Halló kæra fjölskylda.

Flottir gripir og skemmtileg nöfn. Veit Ásgeir æði af nafninu? Honum finnst það eflaust flott. Kveðjur til ykkar allra og vonandi hittumst við sem fyrst.

Kveðja úr Hafnarfirðinum.

Anna Elínborg.

Anna Elínborg Svavarsdóttir (IP-tala skráð) 22.5.2012 kl. 19:35

2 identicon

Kúúúúúúúúúúúúúúúúúúúúúúúúúúlll !!!!

Ég er svoooo stoltur! Og hrærður af gleði! Þetta toppar hamsturinn frá héraðinu Brabant í Hollandi sem fékk nafnið Dr Ás.

En -  enga brandara með að Doktor Ásgeir sé feitur! Eða latur! Eða sé orðinn hryggur!!

Takk !

 PS: veit Andrew þetta ??

Ásgeir Haraldsson (IP-tala skráð) 22.5.2012 kl. 21:57

3 identicon

Sko.

Mér finnst sá mórauði flottari! Sá ljósi er alveg flottur líka og allt það. Og á myndinni er Jón Þór lika svosem alveg ágætur. En sá mórauði er klárlega flottastur á myndinni !!

:)

Ásgeir Haraldsson (IP-tala skráð) 22.5.2012 kl. 22:01

4 identicon

Glæsilegir hrútar.  Vonandi verða þeir ekki í súrum legi í plastfötu á þorranum.  Vona bara að hrúturinn Dr. Ásgeir komi vel fram við bróður sinn og hoppi ekki upp á hann á galsafenginn hátt!  Þá væri hann nefnilega kominn upp á Cant!!

LeMum (IP-tala skráð) 24.5.2012 kl. 17:48

5 identicon

Ath: til að koma í veg fyrir misskilning er nauðsynlegt að það komi skýrt fram að hrúturinn (verðandi frábær sauður)er mórauður. Hann er sko ekki svartur!

Ásgeir Haraldsson (IP-tala skráð) 24.5.2012 kl. 21:47

6 identicon

Þetta á eftir að verða forystusauður, verið viss.  Fylgist grannt með honum og metið verðleika hans.  Þetta er sko sérstakur sauður!! - ég meina sauður, (lambhrútur sem á eftir að verða fullorðinshrútur)  en ekki hins eigin sauður eins og fólk er stundum kallað.

ILH.

Inga Lóa Haraldsdóttir (IP-tala skráð) 25.5.2012 kl. 11:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sævör Þorvarðardóttir
Sævör Þorvarðardóttir
Mamma ætlar að halda þessu bloggi úti á meðan við bræðurnir erum í undirbúning fyrir væntanleg beinmergsskipti sem nunu vera gerð í Newcatle á Englandi. Kveðja Valdimar og Jón Þór
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband