Komin heim.

Hæ hæ.

Við erum komin heim frá Newcastle Jón Þór fékk frábæra skoðun og allar prufur voru fínar. En T-sellur (það eru þær sem berjast á móti veirusýkingum) eru enn bara 10% gjafans en það er í lagi því þær voru heilbrigðar hjá honum. Neautrofílarnir (það eru þeir sem berjast á móti sýkingum) eru 100% gjafans sem er mjög gott því þeir voru ekki að vinn rétt í Jóni. Nú eru bara blóðprufur einu sinni í viku og í lok september má hann fara að lifa eðlilegu lífi það er borða allan mat og vera í fjölmenni. Bara góðar fréttir.

Valdimar minn hefði orðir 19 ára 5 ágúst daginn sem við flugum heim.

Við erum búin að vera í fjörunni á Bergi til að leita af steini handa Valda, erum komin með nokkra hérna á hlaðið. Það dugir ekkert minna en 2 tonn af grjóti (stuðlaberg) handa steinþursinum mínum.

Heyrumst, kveðja Sævör. 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hæhæ, frábært að heyra svona góðar fréttir  samgleðst ykkur innilega. Vona að þið komist fljótt að sameiginlegri niðurstöðu með stuðlabergið

Kristín Pétursdóttir (IP-tala skráð) 11.8.2010 kl. 14:48

2 identicon

Frábærar fréttir :)

Bestu kveðjur frá Emil og Jennifer

Rósa Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 11.8.2010 kl. 23:23

3 identicon

hæhæ yndislega fjölskylda, við vildum bara segja að við söknu ykkar alveg geðveikt mikið vona að við getum farið að fara koma bara á grundó aftur :) en við heirumst seinna sendum alveg fullt að örku frá okkur:)    see ya gaman að sja að allt gangi vel :)  knús frá sigló

Jóa,Halli,Viktoria,kleopatra og dexter (IP-tala skráð) 14.8.2010 kl. 18:12

4 identicon

Glæsi,,glæsi,,glæsilegt !!!!!

M.H. (IP-tala skráð) 16.8.2010 kl. 22:11

5 identicon

Hæ hæ yndislegar fréttir,og alveg glæsilegt hjá NÝJA JÓNI

Kveðja til ykkar allra!!! Gestný

Gestný Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 18.8.2010 kl. 18:25

6 identicon

Gott að heyra þessar góðu fréttir.

Kossar og knús, elskurnar

kv. Halla

Halla Kjartansdóttir (IP-tala skráð) 20.8.2010 kl. 13:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sævör Þorvarðardóttir
Sævör Þorvarðardóttir
Mamma ætlar að halda þessu bloggi úti á meðan við bræðurnir erum í undirbúning fyrir væntanleg beinmergsskipti sem nunu vera gerð í Newcatle á Englandi. Kveðja Valdimar og Jón Þór
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 339419

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband